Mynd dagsins: Þetta hefði aldrei gerst ef nýja stjórnarskráin hefði verið samþykkt

Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur, deilir áhugaverðri færslu frá Stjórnarskrárfélaginu á Facebook-síðu sinni í dag með orðunum “Told-you-so dagsins” gjöriði svo vel.

Á myndinni má sjá 96. grein nýrrar stjórnarskrár og er tilefni myndbirtingarinnar skipan Lilju Daggar Alfreðsdóttur í embætti þjóðminjavarðar án auglýsingar sem hefur verið harðlega gagnrýnd.

Í greininni kemur meðal annars fram að hæfni og málefnaleg sjónarmið skulu ráða við skipun í embætti.

Færslu Katrínar má sjá hér að neðan.