Mynd dagsins: „þetta á að drepa coronavírusinn. keypt í costco!“

Mynd dagsins að þessu sinni var birt í hinni vinsælu grúppu COSTCO-Gleði. Þar deilir Ingibjörg Ósk mynd af sótthreinsibrúsa sem ætlaður er í yfirborðsþrif. Tegundin heitir Dettol Anti-Bacterial surface cleaner.

Ingibjörg birtir myndir með innihaldslýsingu og segir:

„Athyglisvert, þetta efni nota ég mikið , þetta á að drepa Coronavírusinn. Keypt í Costco í fyrra.“

Í innihaldslýsingu segir að Dettol gangi að hinum ýmsu vírusum dauðum, meðal annars kórónavírusnum. Miklar umræður hafa átt sér stað um Dettol og er m.a. spurt hvort það megi spreyja á fólk, hvort Kínverjar viti af þessu og þá hvort Costco sé enn að selja vöruna. Þá segir aðrir að Dettol sé gott í þrif á hina ýmsu snertifleti. Gestur nokkur spyr hvernig Dettol smakkast og hvort innihaldið sé ekki ketó. Þá segir Harpa að hún noti Dettol reglulega og bendir á að sambærileg efni fáist í Bónus.

\"\"

Skúli Rúnar Reynisson blandar sér í umræðurnar og segir:

„Benzalkoniumklóríð og sápuefni. Þá er nú alveg hægt að nota íslenska vöru sem heitir Þrif sótthreinsiúði sem inniheldur meira magn af sótthreinsiefnum en þessi Dettol.“

Ingibjörg Ósk svarar: „Þetta er mjög gott efni. [Ég] er ekkert að segja að þetta drepi þennan vírus, en er mjög sótthreinsandi. Nota bæði í eldhús og baðherbergi. Ég er alveg róleg yfir þessum vírus, fannst þetta bara snilld hvað stóð á brúsanum.“

\"\"

Þórdís Þorvaldsdóttir bendir svo réttilega á að allt kvef sé í raun vegna kórónavírusa. The Sun hefur einnig fjallað um Dettol. Þar segir að vírusinn geti lifað í um 45 mínútur á yfirborði hinna ýmsu hluta. Fyrirtækið Dettol hefur nú séð sig knúið til að koma því á framfæri að það sé ekkert sem staðfesti að Dettol drepi þá útgáfu af kórónavírus sem nú herjar á heimsbyggðina. Fyrirtækið hafi ekki haft tök á að prófa efnið á hinu nýja afbrigði. Talsmaður fyrirtækisins sagði:

„Dettol hefur verið prufað á aðra kórónavírus og hafa niðurstöðurnar verið jákvæðar. Til stendur að gera frekari prófanir á hinum nýja vírus.“

Þá hafa sérfræðingar mælt með að Dettol sé aðeins notað í þrif og það megi ekki undir neinum kringum stæðum innbyrða.

\"\"