Mynd dagsins: „Þessi vírus virðist miklu hættu­legri“

„Þessi vírus er al­vöru og hann virðist miklu hættu­legri en venju­leg flensa, þrátt fyrir að vera oft líkt við hana,“ segir Gísli Marteinn Baldurs­son, sjón­varps­maður og fyrr­verandi borgar­full­trúi.

Gísli Marteinn birtir mynd á Twitter þar sem borin er saman dánar­tíðnin vegna annars vegar hefð­bundinnar flensu og hins vegar vegna CO­VID-19 kórónu­veirunnar. Myndin er frá vef­miðlinum Business Insi­der og eru tölurnar fengnar frá Mið­stöð sótt­varna í Banda­ríkjunum (CDC).

Á myndinni má sjá greini­lega að dánar­tíðnin vegna CO­VID-19 er tölu­vert hærri í öllum aldurs­hópum.

„Ekki bara hjá elstu hópunum sem eru í mestri lífs­hættu. Líka hjá okkur hinum. Hálft % í dánar­tíðni er ó­geðs­lega mikið. Þessar tölur geta breyst en eru miðað við bestu upp­lýsingar,“ segir Gísli Marteinn á Twitter.


Myndina má sjá hér að neðan:

Mynd: Twitter/Business Insider