Mynd dagsins: þessi kakkalakki fannst í garðabæ

Mynd dagsins birti Erling Ólafsson skordýrafræðingur á Facebook-síðunni Heimur smádýranna. Er um að ræða kakkalakka sem fannst nýverið í Garðabæ. Erling skrifar:

„Það loðir við kakkalakka að vera illa þokkaðir. Bara heitið kakkalakki vekur óhug hjá mörgum enda k-in ansi mörg!“

Þá segir Erling: „Fáir vita að í heiminum eru þekktar um 4.600 tegundir kakkalakka. Þeir eru afar áhugaverð skordýr, forn og merkileg að mörgu leyti. Leitt er að allur hópurinn sem slíkur skuli stimplaður sama óorðsstimpli. Tegundirnar sem stimpilinn verðskulda eru ekki ýkja margar.

Kakkalakkar eru flestir frekar stórir og sumir með stærstu skordýrum. Sumir eru æði skrautlegir á lit, stórglæsilegir, og haldnir sem gæludýr víða um heim. Allnokkrar tegundir hafa borist til landsins í gegnum tíðina. Ef til vill er aðeins ein þeirra landlæg hér með vissu og önnur kannski.“

Erling segir að lokum:

Húskakkalakki er hér fastur í sessi og blossar stundum upp í nokkrum fjölda þar sem aðstæður eru þess eðlis, húsrými með skúmaskotum og flóknum holrýmum innan veggja og aðgengi gott að illa vörðum matvælum og grænmetisúrgangi. Það skal viðurkennt að húskakkalakki er til óþurftar og því betra að vera laus við hann. Á meðfylgjandi mynd er húskakkalakki sem fannst nýlega í Garðabæ.

\"\"