Mynd dagsins: þekkir þú parið? getur þú hjálpað?

Mynd dagsins tók Erick Durick þegar hann var nýverið á ferðalafi um Ísland. Náði hann þessari mynd af pari sem var að trúlofa sig á Breiðamerkursandi við Jökulsárlón. Hann segir í samtali við Fréttablaðið að honum vanti aðstoð því hann langar að koma myndinni í réttar hendur.

„Við vorum búin að skoða Jökuls­ár­lón og vorum á leiðinni í annan túr. Ég sá þetta gerast og tók mynd.“ Erick segir að hann hafi ekki viljað ónáða parið á þessu mikilvæga augnabliki. Nú langar honum hins vegar að hafa uppá fólkinu svo það geti eignast myndina. Erick vonast til ein­hver þekki til parsins hér á landi og að lesendur geti hjálpað.

\"\"