Mynd dagsins: svona lítur ísland út í dag

Mynd dagsins að þessu sinni birti veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson á Facebook-síðu sinni.

Myndin er svokölluð MOIDS mynd sem var tekin í gær 1. febrúar kl. 12:55.

„Heiðríkja eða þunn og gagnsæ skýjahula. Jörð er snævi þakin svo að segja á öllu landinu. Síst á Mýrunum, Reykjanes og Grindavík og síðan austur í Hornafirði.

Þingvallavatn sker sig úr, en \"grámi\" yfir vatninu. Ef til vill komið ísskæni á vatnið, hef ekki fregnað enn um líklegan nýís á Þingvallavatni. Þar var hins vegar 17 stiga frost (Þingvellir þjónustumiðstöð) í morgun.

Takið líka eftir smáatriði, eins og Gilsfirði, dökkur snjólaus blettur. Sennilega er fjörðurinn innan við brú meira og minna ísilagður,“ segir Einar í færslunni.