Jón Gnarr, fyrrum borgarstjóri Reykjavíkurborgar, deilir mynd á Twitter-síðu sinni í dag þar sem hann vekur athygli á því að Ingólfstorg sé grátt og kuldalegt líkt og hallærisplanið forðum dögum.
Hallærisplanið var samkomustaður unglinga á sjöunda, áttunda og níunda áratug síðustu aldar en þar voru ungmenni vön því að eyða kvöldunum um helgar.
Ingólfstorg æsku minnar var bílastæði sem gekk undir nafninu Hallærisplanið. það er ekki lengur bílastæði en enþá grátt og kuldalegt Hallærisplan pic.twitter.com/zueh3S4bSJ
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) January 7, 2023
Núverandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, var fljótur að svara um hæl og benda á að það væri til skoðunar hjá borginni að breyta til.
Sammála - vorum einmitt að velta vöngum um daginn hvort ekki væri ráð að prófa að breyta þessu - og gera eitthvað grænt!
— [email protected] (@Dagurb) January 7, 2023