Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er nú fullbólusett, hún fór ásamt eiginmanni sínum í seinni skammtinn af AstraZenica í Laugardalshöll í morgun. „Hitti svo Ragnheiði Ósk Erlendsdóttir sem er framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá HH og hefur leitt okkur í gegnum þetta magnaða verkefni. Í dag er hennar dagur og alls starfsfólksins sem hefur látið þetta gerast. Takk,“ segir Svandís í færslu á Facebook.
Birtir hún svo mynd af sér og Ragnheiði. Virðist sem að eitthvað hafi skolast til þar sem Ragnheiður er höfuðlaus á myndinni, Svandís reyndar líka.