Mynd dagsins: Stefán kemst ekki leiðar sinnar vegna rafbíla

Brýn þörf er á lausnum til að hlaða rafbíla í rótgrónum hverfum Reykjavíkur. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson tók áhugaverða mynd úr miðbæ Reykjavíkur þar sem rafmagnssnúra liggur úr kjallaraglugga, búið er að koma fyrir þríhyrning á snúrunni til að enginn slasi sig.

„Það er farið að verða verulega aðkallandi að koma upp fleiri hleðslumöguleikum fyrir rafbíla í grónu hverfunum í borginni...,“ segir Stefán á Facebook og birtir þessa mynd:

Helga nokkur segir: „Þetta er kannski eins og í hverfinu mínu í Potsdam, þađ vantar lagalegan grundvöll fyrir lagningu rafmagnsleiđslu úr húsunum út á bílastæđin okkar. Borgin á nefnilega gangstéttina og allt undir henni. Þess vegna er ekki hægt ađ leggja leiđsluna sí svona. Tveir nágrannar upplifa þessa mánuđina martröđ í raffarartækjadraumum sínum.“

Anna er ánægð með þríhyrninginni: „Eins gott að þessi viðvörunarþríhyrningur er þarna. Stórhættulegt í myrkri, ég hjóla oft á gangstéttum, gæti stórslasað mig.“