Mynd dagsins: Starfsfólk gjörgæslunnar fékk kærkominn glaðning

Það hefur mikið mætt á gjörgæsludeild Landspítalans í þessari bylgju faraldursins, ekki er hægt að opna fleiri rúm vegna manneklu og starfsfólk er útkeyrt af þreytu. Eitthvað er að glæða yfir heilbrigðiskerfinu, Tómas Guðbjartsson læknir fagnaði því á Facebook að Klíníkin hafi sent fjóra starfsmenn á spítalann. Þá hefur hann birt mynd af glaðningi sem beið starfsfólki gjörgæslunnar.

„Það er aftur komið hvata-nammi á gjörgæsluna við Hringbraut. Svona gjörningur gleður starfsfólk - og er klárlega ljós í myrkrinu. Og bæði Draumur og Pipp. Eruð þið að grínast?,“ segir hann kátur. „Gjörgæsluhjúkrunarfræðingar úti í bæ sem fíla nammi ættu nú að íhuga að mæta til leiks á gjörgæsluna - en þar er alltaf stuð.“