Mynd dagsins: sorgarsaga úr vesturbænum

Alma Jenný Guðmundsdóttir birti mynd dagsins á Facebook-síðu sinni. Þar má sjá hrafnslaup sem var ýtt með löngu priki ofan af fjölbýlishúsi skammt frá Meistaravöllum í Vesturbænum. Alma Jenný greinir frá því að nágranni hennar, náttúrufræðingur hafi orðið vitni að því þegar íbúar í fjölbýlishúsinu létu til skarar skríða. Alma Jenný segir:

„Ástarsaga út Vesturbænum. Á meðan laupnum var steypt með eggjunum þeirra í, flugu þau um í örvæntingu og krunkuðu hátt á meðan þau horfðu á verknaðinn. Stuttu seinna sátu þau, parið á þaki næsta húss og hálf ýlfruðu á milli þess sem þau struku kinn hvors annars.

Nágranni minn fuglafræðingur og kennari við HÍ sá þetta gerast og fylgdist með. Sagðist hann aldrei hafa séð hrafnspar strjúka vanga hvors annars eins og þau gerðu. Ég tárast yfir hlutskipti dýranna í mannanna vonda heimi.“

\"\"