Mynd dagsins: Snjóbakkinn nálgast

„Nú gildir hyggjuvitið í skammtímaspánni. Greinilegur snjókomubakki sést á ratsjánni kl. 12:35. Vindáttin í 1.000 til 3.000 m hæð er suðaustan. Bakkinn stefnir því á Suðurnes og fer líklega vaxandi. Þétt snjókoma því í Keflavík og þar í grennd (við flugvöllinn) frá kl. 14-15 og sennilega 13-16 m/s með og talsvert blint.“

Þetta kemur fram á veðursíðunni Blika.is. Þar segir að þetta standi yfir í mögulega þrjár til fjórar klukkustundir. En hvernig verður veðrið á höfuðborgarsvæðinu?

„Sleppur sennilega við snjó, litlu munar þó s.s. í Hafnarfirði. En hvessir hins vegar í kvöld og þá fer létta mjöllin frá í morgun auðveldlega af stað!“

snjobakki.png