Mynd dagsins: sjáðu muninn – ljósmynd tekin með 5 ára millibili „búið er að margbenda á þetta“

Stjórn­endur helstu orku­fyrir­tækja landsins varpa á­byrgð á lang­varandi raf­magns­leysi á land­eig­endur og náttúru­verndar­sinna að mati Land­verndar. Þá hefur Landverd bent á kosti þess í mörg ár að leggja raflínur í jörð. Skilaboðin eru að það sé of dýrt.

Þorsteinn Gunnarsson sveitastjóri í Skútustaðahreppi birtir athyglisverða frásögn og á mynd dagsins að þessu sinni. Við myndina skrifar hann:

Veðurhamfarir urðu á Norður- og Norðausturlandi snemma haustið 2012 þar sem miklar óveðursskemmdir urðu í Mývatnssveit. Brotnuðu um 100 staurar, rafmagnslaust var í allt að fjóra sólarhringa og aðstæður hinar erfiðustu. Brugðist var hratt við til að koma rafmagni aftur á til notenda.

\"\"

Gripið var til þess ráðs að leggja jarðstreng ofanjarðar til bráðabirgða og honum komið í jörð seinna um haustið. Með þeirri framkvæmd var loftlínukerfið í Mývatnssveit aflagt en í staðinn lagðir þriggja fasa jarðstrengir og svæðið ljósleiðaravætt í leiðinni sem var framsýni.

Í óveðurshvellinum í síðustu viku nutum við góðs af því að nánast allar raflínur eru í jörð, rafmagnið hékk inni allan tímann og svo er hægt að grípa til gufustöðvarinnar í Bjarnaflagi ef allt fer á versta veg sem er okkar varaafl.

Að leggja raflínur í jörð þar sem því er viðkomið er fjárfesting sem borgar sig, það geta Mývetningar vitnað um.

Í Mývatnssveit er víða lítill jarðvegur og því þurfti að grafa jarðstrenginn niður í hraun á köflum í stað þess að plægja hann. Vissulega fylgir því talsvert jarðrask en það er hægt að lágmarka með vönduðum vinnubrögðum og tíminn læknar sárin.

Hér má sjá t.d. samsettamynd frá Grænavatni eftir slíka aðgerð, tekin með 5 ára millibili (mynd af heimasíðu Rarik). Eyðum nú ekki allri orkunni í að finna sökudólga á víxl vegna afhendingaöryggisleysis raforku.

 Búið er að margbenda á þetta í mörg án markvissra aðgerða. Nú þarf að láta hendur standa fram úr ermum eða um leið og óvissustigi hefur verið aflétt og raforkuflutningur tryggður eftir veðurhvellinn í síðustu viku.“