Félag atvinnurekenda hefur reiknað út hlut ríkisins í verði áfengra drykkja. Á myndinni sést að hlutur ríkisins er allt að 90 prósent. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA segir:
„Þessar tölur sýna svart á hvítu að það eru íslenskir stjórnmálamenn, sem ráða í raun áfengisverðinu í vínbúðinni. Fjármálaráðherra reynir að beina athyglinni annað, en hann og aðrir þingmenn bera langmesta ábyrgð á því hvers vegna verð áfengis á Íslandi er svo hátt með því að leggja á það hæstu áfengisskatta í Evrópu – og þótt víðar væri leitað. Ráðherrann boðar í fjárlagafrumvarpi næsta árs enn frekari hækkanir, annars vegar með 2,5% hækkun á áfengisgjaldi og hins vegar hækkun á álagningu ÁTVR, sem enn hefur ekki verið upplýst hvað verður mikil. Það þýðir ekkert fyrir fjármálaráðherra að reyna að vísa ábyrgðinni annað,“
segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Hann nefnir að það sé ekki séríslenskt fyrirbæri að áfengisverð sé margfalt hærra á veitingastöðum en í vínbúðum.