Mynd dagsins: Sigmundur Davíð „baggar“ í sveitinni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fer nú mikinn í þjóðlegum skemmtilegheitum á samfélagsmiðlum. Var hann á hlaupum og borðaði hrátt hakk á Instagram.

Sigmundur er nú staddur í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð þar sem lífrænir afgangar nýttir til að framleiða úrvals gróðurmold og frábært grænmeti sem gestir hótelsins borða. Afgangurinn fer aftur í hringrásina.

Sigmundur fékk að smakka kálið, en hann talar um að „bagga“ það.

„Ég lærði að bagga kál (brjóta það saman og borða sem bagga). Það er best þannig,“ segir hann.