Þjóðin andaði léttar þegar Scott Estill, 59 ára Bandaríkjamaður, fannst á lífi eftir að hadfa horfið við eldgosið í Geldingadölum nú um helgina. Hann varð viðskila við eiginkonu sína, Becky, á gossvæðinu um miðjan dag á föstudag. Hann fannst á áttunda tímanum á laugardag. Hafði hann villst.
„Hann var ekki með símann sinn og við vorum á jeppaslóð og ég hugsaði sem svo; Hvernig er hægt að týna jeppaslóð. Ég fer á undan, veðrið er afleitt. Maður skyldi aldrei yfirgefa ferðafélaga sinn og ætíð vera með vatn og snjallsímann. Þetta voru mistökin sem að við gerðum. Og þetta varð niðurstaðan; hann dó næstum því,“ sagði Becky við RÚV í gær.
Síðasta myndin sem Becky birti áður en Scott hvarf var hins vegar mjög í takt við það sem átti eftir að gerast: