Mynd dagsins: setur upp hinseg­in fána við höfuðstöðvar advania vegna varaforsetans

„Við fund­um bara hjá okk­ur þörf til að fagna fjöl­breyti­leik­an­um í dag og vild­um sýna það með því að flagga.“ Þetta segir Ægir Már Þóris­son, for­stjóri Advania í samtali við vef Morgunblaðsins.

Búið er að skipta út fánum fyrirtækisins og nú hanga hinseg­in fánar við höfuðstöðvarn­ar í Guðrún­ar­túni, en höfuðstöðvarnar eru skammt frá Höfða þar sem hinn umdeildi, Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fundar síðar í dag.

Flott @Advania_is pic.twitter.com/0HyQgzXUuW

— Friðjón Friðjónsson (@fridjon) September 4, 2019