„Í fermingarmessunni fer ég með smá brot úr textanum og kalla fram að þetta er nákvæmlega það sem við viljum ekki. Stundum fyllist ég vanmætti þegar ég sé hatrið sigra í heiminum, en ég á mér draum um að þetta unga, fallega fólk sem er að fermast velji leið kærleikans en ekki hatursins og breyti heiminum.“
Þetta segir séra Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur á Selfossi í samtali við Morgunblaðið en hún segir að boðskapur Hatara hafi strax gripið hana og hún sé hrifin af því sem hópurinn hafi verið að gera. Setti hún upp gaddaól í miðri fermingarmessu um helgina.
Á DFS.is segir að í ræðunni fjalli Guðbjörg um Eurovision framlag okkar Íslendinga og hvaða boðskap er hægt að draga úr atriði og texta Hatara. Guðbjörg segir að hún vilji nýta það sem sé á allra vörum hverju sinni til að kalla fram viðbrögð hjá þeim börnum sem hún er að ferma.