Mynd dagsins: parið sem hittist bara á vorin á ísafirði – síðan hverfa þau

Í sextíu ár hefur par, karl og kona komið undan snjónum í Naustahvilft ofan Ísafjarðar. Auður Hagalín og maður hennar, Snorri Hermannsson hafa fylgst með þegar parið birtist þegar snjórinn byrjar að bráðna á þann hátt að hann myndar par í bröttum hlíðunum.

Í samtali við RÚV segir Auður að hún hafi fylgst með parinu koma undan snjó síðan hún var barn. Upp úr 1960 þegar hún og Snorri byrjuðu að búa saman hafa þau bæði fylgst með þessu óvenjulega pari.

„Það fer eftir veðri og tíðinni hvenær þau koma í ljós og hversu lengi þau stoppa. Konan hverfur aðeins fyrr og þá á maðurinn svolítið bágt. Þau hittast bara á vorin,“ segir Auður og bætir við að fyrst þegar hún byrjar að birtast sé konan með hvítt sjal yfir herðarnar en þegar líða tekur á vorið breytist klæðnaður og síðan hverfa þau og byrtast svo aftur vorið eftir. 

\"\"