Mynd dagsins: ótrúlegt að ljósmyndin sé frá þessum tíma

„Maður skyldi halda að þessi ljósmynd sé ævagömul en svo er í rauninni ekki,“ segir Egill Helgason í pistli á Eyjunni. Egill heldur áfram:

„Hún mun vera tekin 1978 í Grjótaþorpinu, nánar tiltekið upp Bröttugötu. Myndin sýnir glöggt hversu ótrúlega hrörleg gamla byggðin í Reykjavík var á þessum tíma. Menn gengu nokkurn veginn út frá því sem vísu að gömul hús væru mörkuð dauðanum – það væri bara tímaspursmál hvenær þau grotnuðu endanlega niður, grotnuðu niður eða yrðu eldi að bráð. Og því fengu þau að dankast eins og sést á myndinni.“

\"\"

Segir Egill að hugmyndin hafi verið að fjarlægja allt það gamla. Bætir Egill við að til séu teikningar af stjórnarráðshúsinu þar sem er búið að fjarlægja Bernhöftstorfuna og ráðhús fyrir Reykjavík þar sem er búið að rífa Iðnó. Þannig hafi hugmyndaheimur áranna verið upp úr 1960.

Egill heldur áfram:

„Manni finnst þetta auðvitað með nokkrum ólíkindum núorðið. Virðingin fyrir gömlum minjum var bókstaflega engin. En sumir báru því við að þeir myndu gamla og slæma tíma þegar timburhús voru saggafull og köld og tákn um fátækt. [...] Niðurníðslan er nánast annarleg. Manni finnst furðulegt að hugsa til þess að maður hafi alist upp í þessu umhverfi og verið samdauna því.“

Egill heldur áfram:

„Þegar maður gengur um borgina núorðið er þetta eitt af því sem er umhugsunarverðast – hvað hefur verið lagt geysilega mikil fyrirhöfn í að gera upp gömlu húsin. Í þessu liggur mikið fé, þetta er í raun gríðarleg fjárfesting. Það er nokkuð sem varla neinn hefði séð fyrir árið 1978 þegar Grjótaþorpið var hálfgert slömm. Nú er það einstök bæjarprýði og unun að ganga þar um.“