Mynd dagsins: ólafur reiður – „finnst fólki þetta virkilega viðeigandi?“

„Nú er maður búinn að vera að þjálfa boccia í nokkur ár og maður er ennþá að reka sig á svona rugl. Svona voru verðlaunapeningarnir merktir á Hængsmótinu á Akureyri núna um helgina. Finnst fólki þetta virkilega viðeigandi?“ Að þessu spyr Ólafur Þórðarson Boccia þjálfari hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.

Sjá myndina í fullri stærð neðst í fréttinni:

Hængsmótið er árlegt opið íþróttamót fyrir fatlaða sem haldið er á Akureyri. Þar er keppt í tveimur flokkum. Ólafur bendir á, sé tekið mið af verðlaunapeningum á mótinu, að keppt sé í flokki hreyfihamlaðra og flokki „þroskaheftra.“ Í samtali við Hringbraut gagnrýnir Ólafur þessa orðanotkun harðlega.

„Því miður eru þeir merktir þannig. Ég hef bent þeim á þetta á mótum áður fyrr,“ segir Ólafur í samtali við Hringbraut. „Þetta er út í hött.“

Þá segir Ólafur á Facebook:

„Ég er löngu búinn að fá mig fullsaddan af þessari orðanotkun. Ég og fleiri erum margoft búin að benda á þetta. Ég veit til þess að margir keppendur eru sama sinnis,“ segir Ólafur og bætir við að lokum:

„Ég hvet fólk til að endilega deila þessu. Svona orðræða er ekki í lagi.“

\"\"