Mynd dagsins: ó­væntir gestir bönkuðu upp á hjá ragnari þór

Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, deilir ansi skemmti­legri sögu á Face­book síðu sinni nú í morguns­árið. Ragnar fékk ó­vænta gesti í heim­sókn til sín í gær­kvöldi sem bönkuðu upp á heima hjá honum.

„Ég var í símanum í gær­kvöldi, eins og svo oft, þegar bankað er á dyrnar. Dóttir okkar 7 ára stendur upp frá kvöld­matnum og fer til dyra. Hún kallar á mig og ég kem og sé hvar tveir ungir menn standa og bjóða góða kvöldið og rétta mér nafn­spjald sem gaf erindi þeirra til kynna,“ skrifar Ragnar.

Hann segir að þarna hafi verið á ferðinni trú­boðar sem hafi ætlað að snúa fjöl­skyldunni til betri vegar:

„Ég tók við spjaldinu og þakkaði þeim ó­makið en af­þakkaði í þetta skipti. Á meðan ég kvaddi með orðunum, takk fyrir að koma og gangi ykkur vel, var stelpan mín að lesa neðst á spjaldið sem ég hélt á þar sem hún vissi ekkert á hvaða veg­ferð þeir voru,“ skrifar Ragnar og heldur á­fram:

„Ég loka hurðinni og hún horfir á mig á­hyggju­fullum augum og segir... Pabbi! Ætla þeir virki­lega að kirkja Jesú Krist???“

\"\"