Mynd dagsins: nýr starfsmaður kynntur til leiks

Mynd dagsins að þessu sinni birti Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Við myndina skrifaði lögreglan á Facebook:

„Með miklu stolti þá kynnum við til leiks nýjasta starfsmann okkar fíkniefnaleitarhundinn Buster.

Buster er tæplega tveggja ára gamall Labrador Retriever sem var fluttur inn frá Bretlandi fyrr í sumar. Síðan að Buster kom til landsins hefur hann verið í stífri þjálfun og er hann mjög efnilegur í sínu fagi. Hann er allur að koma til í íslenska geltinu en enn má þó greina breskan hreim þarna.

Ef ætti að lýsa Buster í þremur orðum væru það að hann er lífsglaður, vinnusamur og mikill orkubolti.

Við bjóðum Buster velkominn á Suðurnesin og erum þess fullviss að hann mun standa sig gríðarlega vel.“

\"\"