Mynd dagsins: nú fer sólin að lækka á lofti

Mynd dagsins birti lögreglan á Suðurnesjum í tilefni þess að í dag eru sumarsólstöður. Í færslu lögreglunnar segir:

„Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur. Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti.

Eft­ir dag­inn í dag fer sól­in aft­ur að lækka á lofti og dag­arn­ir munu því stytt­ast jafnt og þétt þangað til á vetr­ar­sól­stöðum.“