Mynd dagsins: notuðu naglamottu til að stöðva níðing sem ók á 200 km/klst - fólk í hættu – slóst síðan við lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við aðstoðarbeiðni rétt fyrir hádegi í dag en Lögreglan á Vesturlandi hafði veitt bifreið athygli sem var ekið á miklum hraða við Hvalfjarðargöng í átt að borginni.

Ökumaður virti ekki ítrekuð stöðvunarmerki lögreglu og var talinn valda mikilli hættu, enda var bifreiðin mæld á rúmlega 200 km/klst hraða þegar mest var.

Lögð var naglamotta í veg fyrir bifreiðina og var hún loks stöðvuð í Mosfellsbæ. Þar veittist ökumaðurinn að lögreglumönnum og var handtekinn.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af vettvangi:

\"\"

\"\"