Mynd dagsins: Netverjar ósáttir með yfirlýsingu FH „Vissi ekki að Karl Marx væri harður FH-ingur “

Þórður Gunnarsson vekur athygli á sérkennilegu bréfi sem stuðningsmenn FH sendu frá sér þar sem bæjarfélagið og auðmenn eru hvattir til að loka snemma til þess að auðvelda stuðningsmönnum að komast á leik liðsins um kvöldið.

Bæjarfélagið er hvatt til þess að loka skrifstofum, stofnunum og skólum snemma til að auðvelda harðduglegu starfsfólki að komast á leikinn gegn Leikni í Bestu deild karla .

Þá hvetja þeir auðmenn til að loka verksmiðjum sínum fyrr þennan daginn til þess að vinnandi stéttir geti veitt FH stuðning sinn.

Í því samhengi veltir Þórður því fyrir sér hvenær þýski heimspekingurinn Karl Marx gerðist FH-ingur.

Velgjörðarmenn félagsins séu búnir að bjóðast til þess að bjóða upp á ókeypis aðgöngumiða á leikinn til að vega upp á móti því vinnutapi sem alþýðan verði fyrir af þessum sökum.