Mynd dagsins: montuðu sig af því að láta hatara fá verstu sætin í flugvélinni - „þetta er það sem þeir fá“

Liðsmenn Hatara fengu verstu sætin í flugi frá Tel – Aviv til London. Þetta kemur fram í fésbókarfærslu sem Einar Stefánsson deilir en hann er trommugimp sveitarinnar. Mbl.is greinir frá.

Á skjáskoti sem Einar deilir er birt færsla frá manni að nafni Daher Dahli sem búsettur er í Tel Aviv. Þar segir Dahli að starfsmenn ísra­elska flug­fé­lags­ins El Al hafi látið liðsmenn Hatara fá verstu sætin og montað sig á því að koma því í gegn. Sætin sem liðsmenn sveitarinnar var úthlutað eru öll í þremur öftustu röðum vélarinnar. Þá sitja liðsmenn sveitarinnar ekki hjá hvor öðrum.

\"\"

Starfsfólkið mun samkvæmt Dahli sagt: „Þetta er það sem þeir fá,“ og að sveitin hafi verðskuldað þetta fyrir mótmælin á lokakvöldi keppninnar.

Einar deilir færslunni og segir: „Takk El Al fyr­ir „sérmeðferðina“, og bætir við: „Svölustu krakkarnir sitja aftast.“

\"\"