Mynd dagsins: mikilvæg skilaboð til lesenda frá lögreglunni

Mynd dagsins að þessu sinni kemur frá lögreglunni á Norðurlandi Eystra. Í síðustu viku voru 165 ökumenn stöðvaðir þar sem ljósabúnaður var ekki í lagi eða ekki rétt stilltur. Í ljósi þessa leggur lögreglan enn frekari áherslu á að biðja foreldra að huga að endurskinsmerkjum þar sem myrkrið er allsráðandi þessa dagana og þá um leið afar mikilvægt að bifreiðareigendur gangi úr skugga um að ljósabúnaður sé í lagi.