Mynd dagsins: með dýpstu lægðum – hvað táknar hinn undarlegi kross?

Mynd dagsins að þessu sinni kemur frá Blika.is. Þar segir:

„Tunglmyndin er frá því kl. 15 í dag föstudag.  Sýnir vel form lægðarinnar á Grænlandshafi.  Hún er enn vaxandi og er spáð um 930 hPa djúpt vestur af landinu. Með allra dýpstu lægðum og sleppum við vel hvað miðjan er fjarlæg í raun.  Þó ekki alveg.  Fyrri kuldaskilin fara yfir með stormi og hviðuveðri s.s. undir Hafnarfjalli.“

Þá er von á hvassviðri á morgun og snjó um og upp úr miðjum degi á morgun og segir á Blika að snjór muni falla á Hellisheiði. Á Facebook-síðu Blika segir:

Þá getur hið óvænta gerst en á Blika segir: „MEÐ DÝPSTU LÆGÐUM. En ferill hennar er hagstæður okkur! Þó alltaf eitthvað í gangi. Skörp kuldaskil koma t.d. síðdegis á morgun.“

\"\"

Á Blika.is segir:

„Stundum verður hið óvænta þegar skörp kuldaskil djúpra lægða eiga í hlut, getur orðið mjög hvasst með þeim í stutt stund, hagl og jafnvel eldingar.  Jaðarinn fer yfir síðdegis á morgun.“

Þá segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur einnig:

„Takið líka eftir undarlegum þurrum krossi eða nánast hornréttum vinkli yfir landinu.  Ekki veit ég nánar um tilurð hans, svona veðurfræðilega. Kannski jarteikn á himni??“

Hér má finna ýmsan fróðleik um veður á Blika.is