Mynd dagsins: mbl.is skammað - sérð þú hvað er að þessari setningu? „you can't make this shit up!“

Á vef mbl.is er greint frá því að Rúnar Örn Ágústsson hafi klárað tímaþraut karla á heimsmeistaramótinu í götuhjólreiðum á Englandi. Þar er sérstaklega tekið fram að það hafi hann gerst fyrstur Íslendinga. Í sömu setningu segir orðrétt: „en dag­inn áður hafði Ágústa Edda Björns­dótt­ir leikið sama leik í kvenna­flokki.“ Mbl tekur fréttina af vefnum hjólafréttir, sem einnig segir að Rúnar hafi verið fyrstur Íslendinga en það segir sig sjálft að Ágústa Edda eigi þann heiður, nema að konur séu ekki lengur Íslendingar. Greininni stendur enn óbreytt þegar þetta er skrifað.

\"\"

Þetta orðalag hefur verið gagnrýnt víða á samfélagsmiðlum. Þannig segir Ragnhildur Sverrisdóttir, fyrrverandi blaðamaður og nú talskona Björgólfs Thors Björgólfssonar:

„Konan lék afrekið eftir karlmanninum - degi fyrr! You can\t make this shit up!“

Erla Hlynsdóttir fyrrverandi blaðamaður segir einfaldlega: „Nei