Mynd dagsins: lögregla stöðvaði hópslagsmál í árbæ

Um klukkan sjö í kvöld fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að hópslagsmál væru í uppsiglingu hjá Árbæjarkirkju. Þar höfðu á milli fimmtíu og sextíu ungmenni hópast saman þegar blaðamann bar að.

Tveir úr hópnum töldu sig eiga óuppgerðar sakir og höfðu safnað sitt hvoru liðinu og ákveðið að gera út um málið hjá Árbæjarkirkju. Þá blandaðist eitt foreldri inn í rifrildið. Áður en til átaka kom mættu fjórir vaskir lögregluþjónar á tveimur lögreglubílum á staðinn og komu í veg fyrir að illa færi.

\"\"