Hjartaskurðlæknirinn góðkunni Tómas Guðbjartsson, þekktur sem Lækna-Tómas, gerir stólpagrín að stjórnendum Landspítalans og þá sérstaklega Stefáni Hrafni Hagalín, samskiptastjóra spítalans.
Líkt og fram hefur komið sendi Stefán Hrafn öllum stjórnendum spítalans bréf á miðvikudagskvöld þar sem hann segir þeim að hætta að svara símtölum frá fjölmiðlum, sem hann talar um sem „skrattakolla“, og beina fjölmiðlum beint á sig.
Lækna-Tómas gerir stólpagrín að þessu á Facebook og segir:
„Fjölmiðlar höfðu samband og vildu ræða hvort sjósund sé gott fyrir hjartað. Ég vísaði á samskiptadeild LSH sem sendi út þessa mynd með ítarlegum sérfræðiskýringum frá sjósundssviði spítalans.“