Mynd dagsins: kviknakinn maður í miðbænum

Mynd dagsins var birt á vef DV. Þar má sjá kviknakinn mann ganga eftir Vonarstræti. Þaðan hélt maðurinn inn í Ráðhús Reykjavíkur. Á vef DV segir að mikil hlýindi hafi verið í borginni síðustu daga og margir fækkað fötum. Á vef DV segir:

„Þarna er þó líklega gengið of langt enda telja sumir að full nekt á almannafæri geti sært blygðunarkennd annarra. Ekkert ákvæði í hegningarlögum leggur þó blátt bann við nekt á almannafæri. Í 209. grein almennra hegningarlaga er hins vegar að finna bann við því að særa blygðunarkennd manna með lostugu athæfi en sennilega þyrfti meira til en bara nekt á almannafæri til þess að brotið yrði fellt undir þetta ákvæði.“

Nánar er fjallað um ferðir nakta mannsins á vef DV.