Mynd dagsins: kristinn forðaði þýskum ferðamanni frá því að drekkja sjálfum sér

Mynd dagsins birti Kristinn R. Ólafsson á Facebook-síðu sinni. Þar kveðst hann hafa bjargað þýskum ferðamanni frá því að drekkja sjálfum sér í briminu í Reynisfjöru. Kristinn kom auga á miðaldra mann sem skyndilega reif sig úr öllum fötunum og stóð allt í einu á sundskýlu í fjörunni. Kristinn lýsir atvikinu á þessa leið:

„Hljóp (hann) síðan í sjó fram og átti eftir nokkur skref í brimgarðinn þegar ég stökk til og skipaði honum með bendingum og ópum að koma sér hið bráðasta á þurrt aftur. „You wanna drown your self?! Get out of the water!

Ég hafði staðið og fylgst með hópi Spánverja sem ég hef verið með í hringferð - að þeir færu sér ekki að voða. Þetta og rauður stakkur minn gerðu mig svolítið strandvarðarlega. Þjóðverjinn hefur eflaust talið mig yfirvald á staðnum og hlýddi mér umyrðalaust.

 Ég gleymdi að taka mynd af honum á skýlunni en laumaðist til að taka eina þegar hann var kominn í allt aftur nema skó og sokka. - Spurði hann síðan hvaðan hann væri og ítrekaði við hann hversu hættulegt athæfi hans hefði verið. Skil ekki hvernig einhver menntaskólaþýska, úr dýpstu hugarfylgsnum, hrökk uppúr mér: „Viele Leute haben gestorben... hier“.

\"\"