Mynd dagsins: Kolfinna bókstaflega komin aftur í faðm Björns Inga

Allt ætlaði um koll að keyra í slúðurhópum landsins þegar greint var frá því að Björn Ingi Hrafnsson og Kolfinna Von Arnardóttir væru byrjuð aftur saman.

Samband þeirra hefur verið á milli tannanna á fólki síðustu ár en þau giftu sig með pompi og prakt í Hallgrímskirkju árið 2015 og var það sjálf biskup Íslands sem gaf þau saman.

Þau áttu saman fjölmiðlaveldi og voru farin að láta vel að sér kveða í athafnalífinu þegar allt hrundi. Björn Ingi missti fjölmiðlaveldið og Kolfinna varð gjaldþrota. Þau skildu svo í fyrra.

Þrátt fyrir að aðeins sé liðið ár er mikið vatn runnið til sjávar, Björn Ingi hefur talað opinskátt um að hafa farið í áfengismeðferð og hefur fundið sig sem pistla- og bókahöfundur um Covid-19 faraldurinn.

Í dag eru þau tekin saman á ný og birtir Björn Ingi mynd af þeim saman á Facebook, er Kolfinna nú aftur komin í faðm hans, bókstaflega.