Mynd dagsins: kannast þú við manneskjuna?

„Lögreglustjórinn á Suðurnesjum biður íbúa í Reykjanesbæ að tilkynna til Neyðarlínunnar í síma 112, eða hér í gegnum Facebook, verði þeir varir við grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Er það vegna aðila sem hefur verið að fara inn í heimahús og bílskúra á svæðinu.“

Þannig hljómar tilkynning frá Lögreglustjóranum í Reykjanesbæ. Þar segir enn fremur:

„Íbúar eru sérstaklega hvattir til að læsa öllum hurðum, bifreiðum og geymslum. Ef fólk er með eftirlitsmyndavélakerfi við hús sín þá biðjum við ykkur endilega um að renna í gegn um efnið og kanna hvort að eitthvað sé þar að finna sem getur aðstoðað okkur við leitina. Meðfylgjandi eru myndir sem náðust úr öryggismyndavélakerfi af aðilanum.“

\"\"