Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, skellti sér að gosstöðvunum í dag. Hann smellti af sér þessari fínu sjálfu og birti á Facebook síðu sinni með athugasemdinni: „Kallinn mættur á Litla-Hraun.“
Kallinn mættur á Litla hraun 💪🏻
Posted by Guðmundur Ingi Þóroddsson on Föstudagur, 2. apríl 2021
Guðmundur hefur blandað sér í umræðuna um nafngift nýja hraunsins og þykir ótækt annað en hraunið fái sama nafn og öryggisfangelsi landsins: Litla-Hraun.
Guðmundur fékk þessa hugmynd stuttu eftir að það fór að gjósa og eflaust innblásinn af þeim jarðeðilsfræðingum sem töldu gosið vera með þeim minnstu í sögunni.
Ef nýja hraunið fær ekki að heita Litla hraun þá eru það fordómar ! Litla hraun skal það heita og ekkert annað!!!! 💪🏻
Posted by Guðmundur Ingi Þóroddsson on Laugardagur, 20. mars 2021
Nú hefur hins vegar komið á daginn að um svokallað dyngjugos kunni að vera að ræða en þau eiga til að búa til heilu hraunfjöllin, þannig að það er alls ekki víst að Litla-Hraun verði réttnefni þegar yfir líkur.
Grindvíkingar vilja ráða
Grindvíkingar hafa lagt áherslu á að fá að velja nafn á fjallið enda mátt þola ýmislegt frá því jarðhræringar hófust á svæðinu. Finnur Jónsson greindi fjölmiðlum frá því að efna eigi til könnunar um málið og hefur bæjarstjórn Grindavíkur þegar óskað eftir tillögum frá bæjarbúum.
Mennta og menningarmálaráðherra, sem fer með örnefnavaldið, hefur lofað að farið verði að vilja Grindvíkinga í málinu.