Mynd dagsins: í lífshættu á ísafirði - „hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft“

Mynd dagsins var tekin á Ísafirði en rétt fyrir miðnætti í gær voru björgunarsveitir við Ísafjarðardjúpi kallaðar út vegna tveggja heimamanna sem lentu í sjálfheldu. Mennirnir voru í fjallgöngu og komust í sjálfheldu í Kirkjubólshlíð austan megin í Skutulsfirði, nánar tiltekið í Naustahvilft.

Þó nokkurn tíma tók að staðsetja mennina sem höfðu orðið viðskila og voru í um það bil 700 metra hæð yfir sjávarmáli í miklu brattlendi. Þrír hópar björgunarsveitafólks lögðu af stað gangandi upp fjallið, aðstæður í fjallinu voru þannig að þar var snjór og klaki og erfitt að komast að þeim.

 Um tveimur tímum eftir að tilkynning barst komust björgunarsveitarmenn að öðrum manninum, komu honum til hjálpar niður fyrir kletta og úr sjálfheldu. Ekki sást til hins mannsins en hann var þó í kallfæri og heyrði í björgunarsveitarmönnunum.

Klukkan þrjú hafði tekist að staðsetja hinn manninn sem var staddur töluvert ofarlega í gilinu þar sem erfitt var að komast til hans og engin augljós leið til að koma honum á öruggan hátt niður úr fjallinu. Var þá óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar ásamt því að skoðaðir voru möguleikar á að komast að honum ofan frá með því að fara upp fjallið hinum megin. Maðurinn sem fyrr í nótt hafði verið bjargað úr sjálfheldu neðar í Naustahvilftinni, var þá á leiðinni niður fjallið af sjálfsdáðum.

Jón Arnar Gestsson í svæðisstjórn björgunarsveita á Vestfjörðum sagði í samtali við Vísi:

„Hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft. Þeir þurftu að klæða hann í fjallabúnað, mannbrodda og ísaxir og sigbúnað til þess að koma honum þaðan,” segir Jón Arnar.

Tókst að ná manninum niður á sjötta tímanum í morgun.

\"\"