Mynd dagsins: hvað heldur þú að þessir 6 lítrar af vatni kosti?

Á myndinni sést kippa af sex lítrum af vatni sem er til sölu í versluninni Kvosin við Aðalstræti. Um er að ræða Iceland spring vatn frá Ölgerðinni. Verðið fyrir þessa sex lítra eru ekki nema 2.399 krónur. En það eru um 400 krónur á lítrann.

Sem dæmi má nefna að bensín í sjálfsafgreiðslu á bensínstöð Costco kostar um 200 krónur lítrinn. Er því vatnið í þessari verslun tvöfalt dýrari en bensín.

Það má því segja að sopinn af þessu vatni sé ansi dýr, en taka skal fram að kalda vatnið sem kemur úr krönum landsmanna er frítt. 

Verðið má sjá hér á myndinni fyrir neðan. Er þetta í lagi, er þetta eðlilegt verð eða okur? Hvað segja lesendur?

\"\"