Græn leið, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf í umhverfismálum, birti eftirfarandi myndir á Facebook-síðu sinni þar sem sjá má dularfullar gárur í sjónum vestan megin við flugbrautina á Reykjavíkurflugvelli og Ægissíðu.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað veldur þessum gárum en í svari undir færslunni skrifar Græn leið að á tanganum til vinstri sé skolpdælustöðin við Faxaskjól.
Það má því leiða það að líkum að gárurnar hafi myndast þegar skólpi var dælt út í sjó.
Eflaust munu margir nú hugsa sig tvisvar um áður en þeir skella sér í sjósund frá Ægisíðu á næstunni.
Mynd/Græn leið
Mynd/Græn leið