Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum þingmaður, ljáði hundi sínum rödd í sögu sem hann sagði í færslu á Facebook-vegg sínum í dag. Í sögunni má sjá að þótt hundurinn sé ef til vill besti vinur mannsins er sambúð þeirra ekki allt af dans á rósum.
„Maður er hundur og allt útlit fyrir bjartan og fallegan dag þar sem tilvalið er að hlaupa um í snjónum og skemmta sér og hundi ekkert að vanbúnaði en göngufélaginn aftur móti, hann er eitthvað að gaufa og drolla inni í eldhúsi við að fá sér kaffi og lesa eitthvað röfl á internetinu, og þá er ekki um annað að ræða en að taka af stofuborðinu þetta hvíta sem hann setur alltaf í eyrun á sér þegar hann kemur út að ganga, pinnana þarna í hvíta boxinu, taka þetta upp í sig og henda því svolítið rösklega til og frá svo að hann taki nú eftir því að kominn sé göngutími ... þetta dugði til að rífa hann upp af rassgatinu en hann var furðu reiður ...“
Ekki fylgdi sögunni hver afdrif heyrnartólanna voru, en þótt þau mögulega virki fyrir eitthvert kraftaverk kann mann að hrylla við að setja þau útötuð af hundaslefi upp í eyrun.