Björgunarsveitir á suðurlandi voru kallaðar út á fjórða tímanum í dag vegna manns sem slasaðist illa á fæti á Fimmvörðuhálsi. Rétt fyrir klukkan sex mættu fyrstu björgunarsveitarmenn á vettvang ásamt lækni. Var þeirra fyrsta verk var að gefa manninum lyf til að lina þjáningar hans.
Þá sótti þyrla Landhelgisgæslunnar annan hóp björgunarsveitarmanna og flutti þá eins nálægt slysstað og mögulegt var, en mikil þoka var á svæðinu. Þaðan hélt hópurinn gangandi til mannsins.
Samkvæmt skeyti frá Landsbjörgu er óvíst hvort maðurinn verði fluttur til byggða á sexhjóli eða þyrlu.