Mynd dagsins: „Heldur þann versta en þann næst­besta“

Íslenskufræðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson hefur áhyggjur af viðhorfi Íslendinga til íslenskrar tungu. Telur hann að sú tilhneiging landsmanna til að líta á tungumálið sem „ósnertanlega helgimynd“ leiði til þess að of margir gefist einfaldlega upp á að tala íslensku og tjái sig fremur á enskunni, sem er ekki eins vandmeðfarin.

Eiríkur tjáði þessa skoðun sína á Facebook-hópnum Málfari í tengslum við auglýsingaherferð Oatly. Eins og frægt er orðið fór það fyrir brjóst margra þegar Oatly hóf auglýsingaherferð á ensku með slagorðinu „Like milk, but made for humans.“ Eftir umkvartanir var slagorðinu breytt í hið rammíslenska „Eins og mjólk en gerð fyrir fólk.“

„Þið hélduð kannski að það væri búið að afgreiða Oatly-auglýsinguna?“ spyr Eiríkur og birtir mynd af nýju auglýsingaskilti frá Oatly. „Ég held nú síður. Áðan sá ég meðfylgjandi mynd á Facebook með þeim ummælum „að skárra væri að hafa textann á ensku en að ráða ekki við að snara honum á íslensku skammlaust“, og í umræðum sagðist sá sem setti þetta inn telja „ensku skárri en ambögur“.“

Vandamálið virðist vera að á textanum á skiltinu, þar sem stendur „Í dag langar þessu skilti að bjóða þér upp á frítt kaffi,“ birtist þágufallssýki, eða þágufallsheigð. Eiríki finnst þetta ekki tiltölumál og segir það „tilræði við íslenskuna“ að vilja frekar enska framsetningu en íslensku venjulegs fólks.

„Það er þetta viðhorf sem fælir marga útlendinga frá því að læra íslensku,“ skrifar Eiríkur. „Þeir verða fyrir því hvað eftir annað að viðmælendur skipta yfir í ensku af því að íslenska þeirra er ekki fullkomin. En það er líka þetta viðhorf sem á stóran þátt í áhugaleysi margs ungs fólks um viðgang íslenskunnar. Það er sífellt verið að leiðrétta það og segja því að það tali ekki íslensku. Þegar það sér því svo haldið fram að skárra sé að nota ensku en það mál sem því er eiginlegt eigum við á hættu að það taki okkur á orðinu og skipti einfaldlega yfir í ensku. Er þá ekki verr af stað farið en heima setið?“