Guðmundur Franklín Jónsson, frambjóðandi til forseta Íslands, afhjúpaði í dag jeppann sem verður notaður í kosningabaráttunni. Jeppinn er auðþekkjanlegur enda mynd af forsetaefninu á báðum hliðum ásamt kosningaloforðum.
Á húddi bílsins stendur stórum stöfum „Fram til sigurs!“ og þykir ljóst að Guðmundur ætli að koma sér alla leið á Bessastaði á bílnum. Aftan á bílnum er skrifað „Berjumst saman gegn spillingu!“ en það er einmitt megin slagorð hans í kosningabaráttunni.
Hann minnir þar með á að hann er að eigin sögn einn þeirra sem vill breytingar í þjóðfélaginu og hefur sagt spillingunni stríð á hendur. Hér fyrir neðan má sjá myndir af bílnum.