Mynd dagsins: Guðmundur Felix sestur undir stýri

Guðmundur Felix Grétarsson hefur nú prófað að setjast undir stýri á bíl eftir að hafa dvalið sex mánuði á spítalanum eftir handágræðsluaðgerð sem hann fór í janúar á þessu ári. Aðgerðin var í fyrsta sinnar tegundar en Guðmundur Felix missti báðar hendurnar í vinnuslysi árið 1998.

Guðmundur Felix hefur náð undraverðum bata á þessum stutta tíma með stífum æfingum með nýju höndunum.

Hann birti svo mynd af sér undir stýri á bíl, tekur hann þó fram að hann sé ekki að keyra með höndunum. Þetta sé þó nýtt líf sem hann lifi í dag.