Mynd dagsins: guðlaugur þór lætur hið umdeilda skegg fjúka – svona lítur hann út í dag

Mynd dagsins að þessu sinni birti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á Facebook-síðu sinni. Guðlaugur hefur síðustu mánuði skartað myndarlegu skeggi. Ekki hefur þó öllum þótt Guðlaugur bera skeggið vel og hefur það verið til umræðu á samskiptamiðlum, að ekki væri sæmandi ráðherra að vera skeggjaður!

Guðlaugur Þór segir sjálfur á Facebook:

„Skeggið fékk dræmar undirtektir svo ekki sé nú meira sagt  Ég lét því undan þrýstingnum og gafst upp.“

\"\"