Mynd dagsins birti knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson á Facebook-síðu sinni en hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, í bili að minnsta kosti. Garðar sem hefur verið samningsbundinn Val greinir frá þessu á Facebook. Hann er yngri bróðir Arnars og Bjarka sem gerðu garðinn frægan á sínum tíma með Skagamönnum og íslenska landsliðinu.
Garðar var í áhugaverðu viðtali við 433.is síðasta vetur og þar sagði að Garðar hefði fyrst sprungið út hjá Val og þá hafi boltinn farið að rúlla. Við tóku áhugaverð ár í atvinnumennsku þar sem tíminn í Búlgaríu stóð upp úr. Garðar varð einnig að þola mikið áreiti á þeim tíma, en þáverandi eiginkona hans, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, var afar þekkt þar í landi og er enn.
Garðar gekk til liðs við Val fyrir sumarið og ætlaði sér stóra hluti á Hlíðarenda en meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Garðar birtir yfirlýsingu á Facebook þar sem hann greinir frá því að ferillinn sé á enda. Garðar segir:
„Fyrr í sumar fékk ég brjósklos í neðra bak sem hefur aftrað mér frá því að gera sem ég elska mest, að spila fótbolta. Endurhæfingin hefur gengið hægt með ýmsum áföllum og niðurstaðan var sú í samráði við sjúkrateymi Vals að ég myndi ekki ná að spila neitt það sem eftir væri af sumrinu og fókusinn væri bara á að ná heilsu aftur.“
Garðar greinir frá því að hann sé að flytja til Ítalíu ásamt unnustu sinni.
„Ég mun þar starfa hjá fyrirtæki sem heitir Gili Creations sem hefur meðal annars komið að framleiðslu og uppsetningu á innréttingum á stórum hótelum á Íslandi ásamt víðsvegar um heiminn,“ segir Garðar og bætir við að lokum:
„Fótboltaskórnir eru því að öllum líkindum komnir á hilluna frægu þó maður vilji nú aldrei loka endanlega á þær dyr. Langar að þakka öllum þeim sem ég hef starfað með og kynnst á þessum langa, brösótta en jafnframt skemmtilega ferli.“