Mynd dagsins: forsvarsmenn hagkaupa skammast sín

Starfsmenn Hagkaupa hentu á dögunum rúmlega 300 innfluttum ostum. Umhverfisverndarsinninn Davíð Hörgdal vakti athygli á þessu á Facebook nú á dögunum. Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir í samtali við mbl.is að forsvarsmenn Hagkaupa skammist sín vegna málsins.

„Við skömm­umst okk­ar fyr­ir að sjá svona mynd­ir og erum svekkt út í sjálfa okk­ur fyr­ir þetta. Við not­um þetta til að gyrða okk­ur í brók og telj­um okk­ur verða að gera bet­ur en þetta,” segir Sigurður. Farið verði yfir stöðu mála vegna þessa hjá fyrirtækinu í dag.

„Mér finnst verst að í hverju ost­stykki er brjálæðis­lega mik­il orka sem hef­ur farið í að fram­leiða það. Það er fá­rán­legt að henda því,” er ennfremur haft eftir Davíð á mbl.is. Sigurður segir að starfsmaður Hagkaupa fylgist með dagsetningum í hverri verslun til að lágmarka slíkt tjón.

„Öll rýrn­un er eitt­hvað sem við vilj­um ekki sjá. Kaup­menn reyna ekki að flytja inn til lands­ins vör­ur frá Frakklandi til þess eins að henda þeim í gáma. Það kem­ur verst við okk­ur sjálfa. Okk­ar dag­lega bar­átta geng­ur út á að minnka alla rýrn­un sama hvar hún er í kerf­inu því það hjálp­ar okk­ur í rekstri fyr­ir­tækj­anna,“ seg­ir Sig­urður.

Davíð vonast til að sjá fleiri stunda svokallaðað gámagrans. „Með því að fara einu sinni í viku spar­ast þúsund­ir. Það væri gam­an að sjá fleiri skella sér, fá sér enn­is­ljós, hanska og poka og kíkja á verðmæt­in sem ann­ars er sóað,“ seg­ir hann.