Mynd dags­ins: Flokks­leið­tog­arnir eins og leik­hús­grím­ur

Sminka Hring­brautar, Maríanna Páls­dóttir, tók þessa skemmti­legu mynd af Katrínu Jakobs­dóttur, for­sætis­ráð­herra, og Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra, þegar þau mættust á setti Hring­brautar.

Katrín og Sig­mundur munu ræða saman þjóð­fé­lags­málin í þættinum Pólitík með Páli Magnús­syni sem er á dag­skrá Hring­brautar kl. 19:30 í kvöld.

For­maður Vinstri grænna og for­maður Mið­flokksins fóru um víðan völl í spjalli sínu og ræddu til að mynda heil­brigðis­málin sem lík­legt er að muni skipta sköpum í komandi kosningum.

Sig­mundur, sem hefur verið mjög gagn­rýninn á fram­göngu ríkis­stjórnarinnar í Co­vid far­aldrinum, gekk svo langt að bera heil­brigðis­yfir­völd saman við Martein Mos­dal, eina frægustu per­sónu Ladda.

Ekki fylgir sögunni hvað það var sem fékk stjórn­mála­mennina tvo til að sýna svo ólík við­brögð og verða á­huga­samir les­endur senni­lega að horfa á þáttinn til að fá svar við því.

Glöggir les­endur munu kannski reka augun í að svipirnir á Kötu og Simma minna einna helst á leik­hús­grímurnar frægu sem notaðar voru við leik­sýningar í Grikk­landi til forna, þar sem önnur táknaði tra­gedíu og hin táknaði kómedíu. Þá vilja nú sumir ein­mitt meina að pólitíkin sé hálf­gert leik­hús, eða hvað?

Kata grettir sig á meðan Simmi hlær.
Mynd/Maríanna Páls­dóttir