Mynd dagsins: fjandvinir hittust í fyrsta sinn – „eiginlega varð ég orðlaus við þessi óvæntu kynni“

Mynd dagsins birti Tómas Guðbjartsson, betur þekktur sem lækna-Tómas. Tómas hefur verið í fremstu víglínu þeirra sem eru á móti Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði á Ströndum en þar býr á sumrin Pétur nokkur í Ófeigsfirði sem vill virkja Hvalárfoss og hefur selt vatnsréttindin en þau færa honum fleiri milljónir í vasann. Pétur var á árum áður einn af þeim mönnum sem þótti ekki mikið til virkjana koma, en hvort hann hafi skipt um skoðun þegar honum buðust fjárnumir fyrir að nýta hans fossa, getur auðvitað enginn svarað nema Pétur sjálfur. Ófeigsfjarðarbóndinn þykir ekki mikið til mótmælenda koma og lokaði um tíma slóða að fossinum með því að leggja þar dráttarvél.

En það var svo á 50 ára afmælishátíð Landverndar sem Tómas og Pétur hittust. Tómas segir um myndina:

„Á dauða mínum átti ég von ..... en að hitta Pétur í Ófeigsfirði í fyrsta skipti - auga til auga - og það á 50 ára afmælishátíð Landverndar! Það var eitthvað - enda höfðum við aldrei hist.

Samt höfum við marga hildi háð út af Hvalárvirkjun og Pétur hefur ekkert skafið af því í minn garð við hina ýmsu fjölmiðla. Eiginlega varð ég orðlaus við þessi óvæntu kynni - en smám saman gátum við rætt fossana stórkostlegu upp af Ófeigsfirði og hvort 5% rennsli eftir virkjun sé að þurrka upp fossa eða ekki.

En vonandi sá Pétur - á þessari frábæru afmælishátíð - kosti landverndar og hversu mikilvægt það er að leyfa náttúrunni að njóta vafans. Þannig talaði hann jú einu sinni - áður en hann fór út af sporinu.

Batnandi fólki er best að lifa - og vonandi verður hann virkur þátttakandi í Landvernd. Persónulega gæti hann nefnilega sett einhver merkustu spor í náttúruvernd á Íslandi - og skrifað nafn sitt á spjöld sögunnar, komandi kynslóðum til góða.“